ICELANDGyđa Guđmundsdóttir
já ég er komin aftur á klakann eftir hressandi sumarfrí á Calpe á Spáni..Ég gerði allskyns hluti þarna úti en þeir tengdust allir fjölskyldufjöri haha.. sem er bara ágætt.. t.d
Terra Mítica
Tívolí/Þemagarður með allskyns skemmtilegum tækjum, þar á meðal stæsta trérússíbana í evrópu sem var skelfilega leiðinlegur. En annars voru flest hin tækin mjög skemmtileg.
Aqualdandia
Vatnsrennibrautagarður.. mjög gaman.. eins og hver annar vatnsrennibrautagarður
Versla
Verslaði aðallega í La Marina og þá helst í Mango,Zöru og svo eitthvað líka í H&M.. svo fórum við í einhverja risa Nike búð og ég keypti leikfimisgræjur fyrir versló
Gokart
Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara í gokart og það var ekki verra að þetta var geeðveik braut og ennþá betri bílar. Karlinn í gokartinu vildi reyndar ekki leyfa mér að fara í bestu bílana einhverja hluta vegna.. en þeir fóru uppí 90 km!! samt efast um að fólk haf eitthvað verið að ráða við þessa bíla..en ég þetta var samt eitt það skemmtilegasta sem ég gerði þarna úti!!
Benidorm Balace
Fannst eins og ég væri komin inní Moulin Rouge! þetta var svakalegt show og svo dansleikur á eftir.. mjög gaman að skella sér á svona um verslunarmannahlegina..
Sirkus
Það var akkurat farandsirkus í bænum þegar við vorum þarna og við skelltum okkur að sjálfsögðu í hann. Mikið af allskonar atriðum og fullt af dýrum.. fílum,gíröffum,flóðhestum,hvítu tígrisdýri, ljónum, strútum,öpum og ég veit ekki hvað og hvað.. skellti mér meira að segja á bak á fílnum haha..
Svo kom maður heim í rigninguna.. Geggjað að hitta alla aftur.. fanndís og kristín reyndar báðar úti en ég og hjördís skelltum okkur aðeins í kringluna að kíkja á bækur..
í gær komu svo bara Sævar,Haukur,Frikki og Viggi til mín og svo fórum við til Vigga og svo út.. mjöög gaman að hitt þessar elskur aftur..
Planið í kvöld að reynda að sletta aðeins úr klaufunum..
Búin að vera að breyta herberginu mínu í allan dag og klára það örugglega á morgun..
Ætla svo að fara að halda matarboð fyrir elskurnar mínar sem fór til ítalíu...
Promis
En þetta verður ekki lengra í bili.. ég er farin að taka mig til
stay tuned
-Gýbbí
