ICELANDGyða Guðmundsdóttir

já ég er komin aftur á klakann eftir hressandi sumarfrí á Calpe á Spáni..

Ég gerði allskyns hluti þarna úti en þeir tengdust allir fjölskyldufjöri haha.. sem er bara ágætt.. t.d

Terra Mítica
Tívolí/Þemagarður með allskyns skemmtilegum tækjum, þar á meðal stæsta trérússíbana í evrópu sem var skelfilega leiðinlegur. En annars voru flest hin tækin mjög skemmtileg.
Aqualdandia
Vatnsrennibrautagarður.. mjög gaman.. eins og hver annar vatnsrennibrautagarður
Versla
Verslaði aðallega í La Marina og þá helst í Mango,Zöru og svo eitthvað líka í H&M.. svo fórum við í einhverja risa Nike búð og ég keypti leikfimisgræjur fyrir versló
Gokart
Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að fara í gokart og það var ekki verra að þetta var geeðveik braut og ennþá betri bílar. Karlinn í gokartinu vildi reyndar ekki leyfa mér að fara í bestu bílana einhverja hluta vegna.. en þeir fóru uppí 90 km!! samt efast um að fólk haf eitthvað verið að ráða við þessa bíla..en ég þetta var samt eitt það skemmtilegasta sem ég gerði þarna úti!!
Benidorm Balace
Fannst eins og ég væri komin inní Moulin Rouge! þetta var svakalegt show og svo dansleikur á eftir.. mjög gaman að skella sér á svona um verslunarmannahlegina..
Sirkus
Það var akkurat farandsirkus í bænum þegar við vorum þarna og við skelltum okkur að sjálfsögðu í hann. Mikið af allskonar atriðum og fullt af dýrum.. fílum,gíröffum,flóðhestum,hvítu tígrisdýri, ljónum, strútum,öpum og ég veit ekki hvað og hvað.. skellti mér meira að segja á bak á fílnum haha..

Svo kom maður heim í rigninguna.. Geggjað að hitta alla aftur.. fanndís og kristín reyndar báðar úti en ég og hjördís skelltum okkur aðeins í kringluna að kíkja á bækur..
í gær komu svo bara Sævar,Haukur,Frikki og Viggi til mín og svo fórum við til Vigga og svo út.. mjöög gaman að hitt þessar elskur aftur..
Planið í kvöld að reynda að sletta aðeins úr klaufunum..
Búin að vera að breyta herberginu mínu í allan dag og klára það örugglega á morgun..
Ætla svo að fara að halda matarboð fyrir elskurnar mínar sem fór til ítalíu...
Promis


En þetta verður ekki lengra í bili.. ég er farin að taka mig til

stay tuned

-Gýbbí


Sól sól skýn á migGyða Guðmundsdóttir

ég verð að drullast til að blogga!!

þetta hefur verið hugsun mín annan hvern dag frá síðasta bloggi..
og núna er komið að því..


Að undanförnu hefur vinnan spilað stórt hlutverk í tíma mínum en þar fyrir utan höfum ég og fanndís reynt að fara eins mikið út og við getum á virkum dögum..

Helgin sem var að líða var með þeim betri..
party á föstudaginn hjá Pésa K.. það voru gjörsamlega allir í þessu partyi og diskarnir sem ég og fanndís komum með björguðu gjörsamlega stemmingunni þarna..Tók nokkrar myndir og líka fullt með hjördísi á hennar vél.. Það var dansað allt kvöldið og skemmtu sér flestir konunglega..svo kom Biggi driver og skutlaði mér,hauki,emil,beggu og vigga heim..

Svo á laugardaginn þá fór ég í party til Þórdísar úr vinnunni það var hin besta stemming þar og allt vinnukrúið mætt á svæðið..
þegar þau voru að fara niðrí bæ þá kíkti ég aðeins út og hitti fullt af fólki sem var á röltinu til vidda.. ég var nú ekkert lengi úti það kvöldið.. enda er ég ekki með nógu mikið djamm þol til að geta verið í hörkunni báða dagana..

Já og viti menn ég tók mig til og lagfærði myspacið mitt.. sem er fyrir hugasama www.myspace.com/gydag.. check it


Í gær fór ég með vinnunni í gokart og bláalónið.. gaman að segja frá því að ég var með annan besta tímann.. gríííðarlega stolt af því enda dýrka ég gokart..

 Er búin að láta allar myndirnar inná frá föstudeginum


svo er bara spánn eftir 8 daga... MAMA..
er ekki einusinni byrjuð að verða spennt

en svo er málið að skella sér út í kvöld og hitt vinina

-l8er

Gybb



Hey baby I got the potionGyða Guðmundsdóttir

Blee..
bloggbloggblogg

kominn tími til

það sem hefur drifið á daga mína frá síðasta bloggi er meðal annars þetta

  • Vinna
  • Fór til Sauðakróks á fótboltamót
  • Fór að veiða á Sauðakróki
  • Dúndraði önglinum í kinnina á systir minni
  • Fór til ÍTALÍU
  • Upplifði skemmtilegustu ítalíuferð fyrr og síðar
  • Kom heim
  • Fór aftur að vinna
  • Tók þátt í verulegri chill helgi meðan mest allt fólkið var á Akranesi

Eins og einhverjir hafa tekið eftir þá lét ég mínar myndir frá Ítalíu og Hrannar myndir. Takk elsku hrönn fyrir myndirnar!! loveyou



Erla-Ég-Eva-Sigga-Hrönn-Steinunn-Emma

Elska ykkur!! takk fyrir ferðina
Hlæjandi



það var nú líka gaman að hitta Alla vini sína aftur!!!
Kristín Ég og Hjördís... loveyou


og ekki má gleyma fanndísi.. loveyoudarling :*


ég held að ég sé búin í bili..
chekiði á myndunum

pís át

-Gyða

Kominn tími til að blogga ?Gyða Guðmundsdóttir

Það verður að segjast eins og er að ég er að drulla uppá hnakka í blogginu og þessari síðu almennt..

"Tek þetta á mig"

hahaha en svona til að bæta þetta upp og fara eftir góðum ábendingum Emils þá tek ég eitt rækilegt blogg núna og fer yfir liðna atburði
byrja á því að segja sry við Hugrúnu.. ég sökka því ég mundi ekki hvern ég hitti en jæja..

Menntaskólaákvörðunin mikla var ábyggilega sú erfiðasta sem ég hef tekið.. öfunda þá sem voru búnir að ákveða sinn skóla þegar þeir voru sex ára..
þannig er mál með vexti að ég gat ekki með nokkru móti ávkeðið hvort ég ætti að fara í Versló eða MH eins og sjá mátti á skoðanakönnun sem var í svona 3 mánuði á þessari síðu..
þegar klukkan var 23:50 þann 12.júní var ég búin að vera í stresskasti allan daginn yfir því að í dag væri dagurinn. Dagurinn sem maður þyrfti að staðfesta!! ég breytti úr mh í versló á síðustu stundu, fríkaði út í 10 mínútur yfir því hvort ég ætti að breyta aftur og svo þegar klukkan var orðin 12 fór ég í fýlu vegna þess að ég hafði valið vitlaust..
Megin ástæðan fyrir því að ég valdi versló var sú að maður getur komst inn í mh líka um áramótin.. ef ég hefði valið mh og ekki líkað þar þá hefði ég Aldrei komsti í versló.. en með versló í 1.sæti held ég öllu opnu.. ...jájá en nógum það ég er mjög sátt núna við valið mitt.. þýðir ekki að velta sér meira uppúr þessu.. bara að bíða og sjá..

Svo hélt ég smá svona afmælisgrillboð fyiri KÓRPÍURNAR.. fæ ekki nóg af þessi fallega nafni hahah en sigga,eva,erla og hanna mættu ferskar í börgera og grillaða banana með bráðnunu mars súkkulaði
mmmmm..
það var mjéga.. ojj mjéga..

17. júní var á laugardaginn en svo ég taki þetta í réttri röð er betra að byrja á 16.júní partyinu árlega sem er haldið í mörkinni fyrir starfsmennina.. byrjaði á mjög góðu grilli.. svo var farið yfiri í svona leiki til að hrissta mannskapinn saman og svo tóku við drykkjuleikir og dans fram á rauða nótt haha... ekkert nema gott um þetta party að segja...

17.júní tók svo við daginn eftir og er þá venjan að skunda niðrí bæ.. fjúka og rigna niður.. troða candyfloss í hár, föt, andlit og svo smá í munninn líka.. frjósa úr kulda á arnarhóli og eitthvað í þeim dúrnum.. en þessi 17.júní var nú eiginlega bara miklu skemmtilegri en það.. fór niðrí bæ með familíunni um daginn og við fórum á kaffihús og kíktum líka smá í búðir... svo var brunað heim til að missa ekki af leiknum.. ísland-svíþjóð í handbolta.. svo var maður í taugarústi á meðan á leiknum stóð og svekkti sig aðallega yfir því að vera ekki á staðnum!! en þrátt fyrir fáránlega dóma hjá spænskum drullum náðu íslendingar að tryggja sér sæti á HM í handbolta..!!
svo um kvöldið fór ég út að borða á eldsmiðjunni með fjölskyldunni og svo röltuðum við niðrí bæ og þar hitti ég 108 stelpurnar og emil,hauk,frikka,bjarka,hemma,gumma og adda. Var ekki búin að hitta þetta frábæra fólk aallt of lengi þannig ég var með þeim bara þangað til ég fór heim.. sem var reyndar í fyrri kantinum því vinnan beið mín daginn eftir...

Kristín er í amerkíku í svona 35 stiga hita í húsinu hennar ömmu sinnar þar sem er sundlaug í garðinum.. ég veit ekki hversu mikið mig langar til að vera hjá henni núna! en ég bíð spennt þangað til hún kemur heim !

Svoooo komum við að ÍTALÍU.. síðast en alls ekki síst.. Eva,Sigga,Erla og Steinunn eru farnar á undan og svo fer ég EFTIR VIKU!!! hver einasta fruma í líkama mínum þrÁIR að komst til MARINA DE MASSA! sem er án efa minn uppáhaldsstaður á jörðinni! en já eins og við mætti búast þá hlakka ég mjööög mikið til!

allir þeir sem lesa þetta blogg og eru í 3-S í verlsó næsta haust meiga láta mig vita..

jæja eftir að hafa sparað blogg gleðina of lengi þá tók ér 5 fallt blogg núna..
vonandi nennir einhver að lesa þetta

síja

-Gyða


Working for the weekendGyða Guðmundsdóttir

Sæl öll..

Útskriftarflautið gekk nú bara ágætlega.. þarna fengu allir að sjá hvers konar nörd býr innra með mér.. en maður kvaddi Réttó.. námsstað sinn til síðustu þriggja ára.. það vottaði fyrir pínu söknuði í manni að kveðja alla kennarana.. því það verður að segja að flestir kennararnir í réttó eru Meistarar! svo leinast líka nokkrir hálfvitar inni á milli..

Útskriftarveilsa mömmu var líka mjög skemmtileg.. siggasoffía og erla mættu og við vorum í ruglinu.. mjög gaman..
Helgin var nú ekki af skemmtilegri gerðinni.. föstudagurinn fór í útskriftarveilsuna..svo var ég að vinna eins og motherfucker á laugardaginn og það hefur sjaldan verið jafn mikið að gera.. mamma hans pésa kom og líka mamma hennar hjördísar.. alltaf gaman að fá fólk sem maður þekkir.. en um kvöldið var ég gjörsamlega buguð úr þreytu og fór bara með mömmu og leigði spólu.. LÓNER er Ég.. en jæja.. hitti sigrúnu,helenur,helenuh og hugrúnu aðeins úti í grím og þær voru bara hressar í bragði

svo á sunnudaginn var bara chill og svo auðvitað bíó.. fórum á poseidon.. það var slatti af fólki eins og vanalega.. flestir úr grafarvoginum.. ég,fanndís og andri vorum einu sem mættu úr fossvoginu..

ég er samt svo hrædd um að maður eigi ekkert eftir að hitta vini sína í sumar.. auðvitað hittir maður bestu vini sína og svo mikið af fólki um helgar.. en sumt fólk sem maður er ekkert beint að fara að bjalla í það á maður ekkert eftir að hitta mikið.. :( maður verður bara að vera duglegur...

vá ég held að þetta sé leiðinlegasta blogg í heimi



-Gyða

Att búGyða Guðmundsdóttir

já þá er þetta loksins Allt búið!!

lét myndir frá árshátíðinni og lokaballinu (inni í myndir)

munnleguprófi gengu eins og í sögu
mjög sátt með samræmduprófin
gleði gleði gleði

svo er útskrift í kvöld fyrir 10.bekk Réttó og ef ykkur hlakkar ekki til þá getiði byrjað að hlakka til núna því að ég á að spila á þverlfautuna!!
gosh.. gæti þessvegna bara farið uppá svið og hengt mig..
social suecide! hahaha



Marilyn Monroe á afmæli í dag og vil ég óska henni til hamingju með afmælið. Hún hefði orðið áttræð í dag!



er að fara í köttara á eftir og svo kannski eitthvað í smáralind eða kringluna..

móðir mín kær er að fara útskrifast úr Landbúnaðarháskólanum sem Garðyrkjufræðingur haha.. og að því tilefni verður haldin heljarinnar veisla á morgun ... vúhúú..

en ég kveð ykkur kæru félgar með bros á vör og bros í hjarta og óska ykkur öllum til hamingju með samræmduprófin!!

l8er á línuna

Almennilegt..Gyða Guðmundsdóttir

Tími til að blogga..

Í gærkvöldi komu Fanndís&Kristín&Hjördís til mín að horfa á Americas Next

 og Ungfrú Ísland..
við erum allar freekar sammála um að Ungfrú Ísland verði kjánalegri með árunum..við entumst ekki í að horfa á hana alla og skelltum okkur út að trampó í miðjunni en horfðum svo á endann..
komum í tæka tíð til að verða vitni af kjánalegri next tískusýningu sem fór fram í bláa lóninu.. og það sem meira að er að á meðan síðkjólasýningunni fór fram þá var ég alltaf að segja: ooo hvað það væri frábært að einhver mundi detta... ekki bara hrasa heldur detta alveg kylliflöt.. ég sagði þetta kannski svona 5 sinnum og svo eftir að Unnur Birna hélt huglúfa ræðu þá viti menn hún datt!! ekki hrasaði bara heldur hún bara lá í gólfinu.. ég held að ég hafi sjaldan hlegði svona mikið.. samt fékk ég líka sting og fann til með henni en það fyrsta sem kom upp í huga minn þegar þetta gerðist var einfaldlega hlátur!! hahahaha.. ég er of vond...



En allavega þá voru úrslitin alveg ásættanleg..
svo eftir að keppninni lauk þá skelltum við okkur aftur út að trampólín og smelltum einnig nokkrum myndum sem munu skjóta hér upp kollinum von bráðar..
en í dag þá hlotnaðist mér miði á danssýningu JSB ég þekkti nú bara meira en mig gruanði af stelpum þarna til dæmis Fanndísi,Hjördísi,Sigrúnu,Rósu,Ragnheiði,Hófí,SigguSoffíu og Evu þessi sýning var mjög skemmtileg og vil ég þakka henni Hjördísi fyrir að hafa reddað mér miðanum
Koss

En svo á morgun er 26.maí MY BIRTHDAY.. maður verður að reyna að halda uppá það einhvern veginn.. óvíst þó hvernig en ég held allavega eitthvað... og líka kórpíuboð :D


en þetta verður eekki lengra í bili

CHAO

-Gybbs

blogging blogg bloggersGyða Guðmundsdóttir

jaaaaaæja..

Kominn tími á blogg..
Núna eru í gangi munnleg próf í skólanum.. er búin að fara í náttúrufræði og íslensku.. gengur bara mjög vel þó ég segi sjálf frá..
Svo nálgast afmælið mitt óðfluga.. og þegar maður verður sixteen þá... MÁ MAÐUR BYRJA AÐ LÆRA Á BÍL... gosh ég er svoldið mjög stressuð.. er búin að reyna að æfa mig eins og ég get á golfbílnum (DODDA) hahah mamma skýrði hann en svo skellur fyrsti ökutíminn á á mánudaginn.. jii..

Helgin var sú fínasta.. á föstudaginn var afmæli hjá Kristínu.. ég, Fanndís,Hjördís,Kristín og Sigga borðuðum heima hjá Kristínu og gistum svo þar... það var ýkt gaman og ég elska þessar stelpur alveg útaf lífinu.. allar með tölu haha.. væmið
en á laugardaginn fór ég til fanndísar og við sýndum meistaratakta að grilla börgera.. svo kom tinna og svo líka haukur Örn, Haukur Ingólfs og Hemmi og við horfðum á eurovision.. svo bættuast Frikki, Sæbbi og Addi við en þeir stoppuðu stutt.. svo kom emil.. jájájá.. ætla ekki að fara útí ystu æsar þessarar helgar en hún var skrautleg og skemmtileg..

en las vegas er byrjað.. svo ég kveeeeeð

bæj

-Gybbs

LordioGyða Guðmundsdóttir

já dag er 16. maí.. sem þýðir að

  • HANNA LILJA Á AFMÆLI!!! 
    ég óska honey lill party pill hjartanlega til hamingjum eð afmælið
  • það eru FJÖRTÍUOGTVEIR FOKKING DAGAR TIL ÍTALÍU!
  • það eru 3 dagar í DAVINCICODE!
  • 2 dagar í undankeppni EUROVISION






MARINA DE MASSA


shiiiiii




ég vil líka óska ERLU RUT til hamingju með að DÚXA söngprófin!!!



you rock...!


heyrðu farin að læra undir munnlegt náttúrufræðipróf.. vona að JPZ slátri mér ekki með berum.. vona að hann verði ljúfur sem lamb..

l8er á línuna

-Gyða

íha!!Gyða Guðmundsdóttir

Samræmduprófin eru búin og ég vil óska öllum til hamingju með þau !!!

um leið og stærðfræði prófinu lauk fórum við svona nánast rakleitt upp í rútu og þaðan lá leiðin í skagafjörð.. við vorum megnið af deginum í rútunni og svo stoppuðum við í Varmahlíð til að fá okkur að snæða og skipta um föt fyrir RAFTING.. vá ég bjóst engann veginn við að þetta yrði svona mikil snilld.. eftir að allir höfðu komið sér fyrir í sexy blautbúningum skiptum við okkur niður í báta og fengum kennslu.. ég, Kristín, Fanndís, Hjördís, Viggi, Kolli, Kristján Kennari, Birna og Gyða kennari vorum saman í bát og fengum leiðbeinanda sem var ekki svo skemmtilegur við fyrstu sýn en það rættist aldeilis úr honum hahaha hann leifði okkur að standa í bátunum á meðan við vorum að róa og hoppa útí.. þegar við hoppuðum útí í fyrsta skiptið þá flaut Kristín eitthvert lengst í burtu og fór í annan bát og eitthvað svaka.. en ég og fanndís létum okkur bara fljóta og kræktum okkur saman hahah.. við vorum þokkalega lang fokking svalasta liðið!!

þegar raftingið var búið þá fórum við á gististaðinn okkar sem ég veit bara ekkert hvað heitir en þá fóru allavega allir í herbergi og komu sér fyrir og svo í sund.. til svona 2 eða eitthvað og svo tók nóttin við og þá fór fólk ýmist að kúra eða eitthvð að steikjast..
Palli K fór þar alveg á kostum..
næsta dag mátti velja á milli þess að fara í kletta sig , reiðtúr eða bæði.. ég og fanndís skellum okkur í klettasig sem var ekkert smá gaman.. svoldið mjög scary fyrst en svo í endann var maður farin að spyrna sér fast og skjótast niður.. svo þegar það kom að reiðtúrnum þá vorum ég ,Kristín og Fanndís einum of þreyttar og ákváðum bara að beila og hanga í kaupfélagi sauðakróks á meðan.. verð að lýsa ánægju minni á þessari búð því að það fæst ALLT þarna.. frá byssum yfir í ískápa yfir í garn yfir í föt yfir í síma.. og þetta var ekki einusinni það stór búð..en þegar krakkarnir komu til baka úr reiðrúrnum þá fórum við öll á veitngastað í pizzuveilsu..
eftir það var haldið heim og þar gekk ýmislegt á t.d þegar strákarnir fóru upp á þak með fullun bala af vatni, létu svo beggu kalla á alla til að koma út og segja að haukur og andri væru í slag.. svo þegar allir komu út þá helltu þeir fullum bala af vatni sem fór nánast allur á hann emil hahaha.. svo fórum við nokkriri krakkar í sund kl svona 4 um nóttin.. brutumst inn í sundið með því að klifra yfir risa grindverk.. svo kom kristján kennari og var ekkert svo hress og svo kom gyða og var ennþá óhressari þannig að við drulluðumst uppúr.. var ekki með neitt handklæði þanni ég hljóp á bikiníinu og peysu yfir túnið inní skálann.. engin furða að ég og fanndís erum ótrúlega raddlausar haha..
við náðum aðeins að sofna frá svona 7-10 en svo vorum við vakin til að fara að taka saman..
í rútunni á leiðinni heim leyfði addi mér að hlusta á diskana sína með broken social scene, arcade fire og flaming lips sem eru allt geeeðveikar hljómsveitir og ég er ekki frá því að ég kaupi mér diskana með þeim..

en svona í heildina litið þá var þessi ferð meistara stykki og gerðist margt skemmtilegt.. þó veit ég ekki um neinn verulegann skandal en það er aldrei að vita því fólk getur verið mjög lúmst við að leyna svoleiðis... hef ég heyrt...

en ég verð að enda þetta blogg núna..
takk fyrir skemmtilega ferð

-Gyða

Textareitur

Sumarið er tíminn..

Auglýsing

Leit

Leikur dagsins